- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Jafnrétti og umræðan um það á auðvitað alltaf að vera áberandi í samfélaginu. Þessa dagana stendur yfir jafnréttisvika Hugins, en þá er jafnrétti af fjölbreyttu tagi sérstaklega í sviðsljósinu. Ýmsir viburðir eru á vegum skólafélagsins sem tengjast jafnrétti á einn eða annan hátt, eins og gleðidagar FemMA og PrideMA, vídjókvöld og Pöbbkviss.
Nú í dag var hringt á sal og nemendur komu saman í Kvosinni og hlustuðu á fyrirlestur Aðalbjörns Jóhannssonar, en hann fjallaði um ýmislegt sem tengist hinseginleikanum, fordómum og bakslagi í réttindabaráttu hinsegin fólks. Aðalbjörn er nemandi í HA og er stýri hinsegin félags stúdenta á Norðurlandi. Til gamans má geta að hann vinnur einnig á heimavist MA og VMA.
Jafnréttisráð MA skólaárið 2025-2026 skipa:
Anna Sigríður Davíðsdóttir, jafnréttisfulltrúi MA
Alma Oddgeirsdóttir, fulltrúi starfsfólks
Snorri Magnússon, fulltrúi starfsfólks
Vilté Petkuté, fulltrúi Hugins
Elvar Björn Ólafsson, fulltrúi Hagsmunaráðs
Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, fulltrúi Femma
Máni Freyr Þorsteinsson, fulltrúi Pridema
Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, fulltrúi 2. bekkjar
Alex Kári Stelly Eydal, fulltrúi 1. bekkjar
Steingrímur Árni Jónsson, fulltrúi 1. bekkjar
Hekla Himinbjörg Bragadóttir, fulltrúi 3. bekkjar
Hildur Helga Kolbeinsd. Bergeng, fulltrúi 3. bekkjar