Skjáskot af jólatónleikum TóMA og forsíðu skólablaðs, fengið af fésbókarsíðu Hugins
Skjáskot af jólatónleikum TóMA og forsíðu skólablaðs, fengið af fésbókarsíðu Hugins

Skólafélag MA slær ekki slöku við þessa dagana þrátt fyrir erfiðar aðstæður til samkomuhalds og útgáfuveislna. Í gær var jólatónleikum TóMA streymt á netinu. Dagskrá tónleikanna var stútfull af vel völdum jólalögum í bland við aðrar uppákomur. Í dag er svo annar skemmtilegur viðburður á dagskrá.

Eftirfarandi tilkynningu má sjá á fésbókarsíðu Hugins:

Jólin koma snemma í ár því haustblað Munins kemur út á MA planinu í dag, 7. desember frá 15:00-17:00.

Mælum með að koma á bíl og fá afhent blöð inn í hann til að passa upp á sóttvarnir.

Hlökkum til að sjá ykkur.