Frá og með haustönn 2025 mun Menntaskólinn á Akureyri bjóða upp íslenskubrú. Þessi námsbraut hefur undanfarin misseri verið kennd í Verkmenntaskólanum á Akureyri en flyst nú yfir til MA.

Brúin er sett upp sem tæplega 100 eininga nám á tveimur árum og er opin byrjendum í íslensku á framhaldsskólaaldri, óháð námslegum bakgrunni. Eitt af lokamarkmiðum námsins er að opna möguleika nemenda á frekara námi við íslenska framhaldsskóla. Við námslok á íslenskubrú er reiknað með að nemendur séu undirbúnir fyrir meira nám í íslenskum framhaldsskólum eða hafi bætt svo mjög íslenskukunnáttu sína að hún nýtist þeim á vinnumarkaði. Að námi loknu geta nemendur útskrifast með 98 einingar eða innritast í annað skilgreint nám á framhaldsskólastigi.

Auk íslenskuáfanga eru áfangar í ensku, stærðfræði, menningar-og náttúrulæsi, leiklist, íþróttum og upplýsingatækni. Reynt er að mæta nemendum sem hafa góðan grunn í ensku og stærðfræði með því að bjóða þeim að sækja áfanga á öðrum brautum. Allt nám á íslenskubrú er hugsað til undirbúnings fyrir frekara nám á framhaldsskólastigi.

Verkefnastjóri á íslenskubrú er Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir. Það er tilhlökkunarefni að hefja kennslu á þessari nýju námsleið og auka þar með námstækifæri í Menntaskólanum á Akureyri.

Sjá nánari lýsingu á íslenskubrúnni hér.