- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Hluti af sendibréfum fannst inn í kápu á gamalli bók í geymslu skólans nú á dögunum. Pappír var dýrmætur fyrr á öldum svo gömul bréf voru gjarnan endurnýtt til bókbands. Þau voru stundum límd saman í lög til að fá aukinn styrk í bókarkili. Erfitt er að rýna í texta bréfsins en þó má greina nafn prests í Skagafirði. Þegar áritunin er borin saman við þekkta undirskrift séra Jóns Konráðssonar verður ekki annað séð en að bréfið sé undirritað af honum sjálfum „Herra prófasti J. Konráðs syni Mælifelli.“ Jón þessi var fæddur árið 1772. Hann var stúdent frá Hólaskóla, fékk Möðruvallaklaustursprestakall árið 1810 og Mælifell sama ár. Jón var skrifari og sinnti þjóðlegum fróðleik. Hánn dó árið 1850. Til gamans má nefna að maðurinn sem skrifaði nafn sitt á bréfið, fermdi Gísla Konráðsson sagnaritara árið 1799 og skýrði svo son hans í skemmu á Langamýri í Skagafirði árið 1808. Sá fékk nafnið Konráð og varð síðar Fjölnismaður.