Kór Menntaskólans á Akureyri fær nú um helgina heimsókn frá kórum Menntaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík.

Kórarnir munu æfa saman í kvöld og á morgun og halda síðan sameiginlega tónleika annaðkvöld (laugardagskvöld) klukkan 20:00 á Miðsal í Gamla skóla.

Allir eru velkomnir á tónleikana, en gengið verður inn um gamla aðalinnganginn í Gamla skóla, að norðanverðu.