Stuð og stöðurafmagn í Gamla í nóvember
Stuð og stöðurafmagn í Gamla í nóvember

Kvikmyndatónlist og söngleikir eru þema nóvembermánaðar. Hvað er betra en lífga upp á tilveruna og veita birtu inn i í svartasta skammdegið með nostalgískum slögurum hvíta tjaldsins og klassískum stefum söngleikjanna. Við verðum í bíómynda- og söngleikjastuði í vínylherberginu og ætlum að þeyta skífum úr safni skólans á meðan við freistum þess að leysa lífsgátuna. Elsta platan sem við skellum á fóninn í þessum næstsíðasta mánuði ársins er frá miðjum sjötta áratugnum en sú yngsta frá árinu 1988. Sem dæmi um áhugaverðar nóvemberskífur má nefna fyrstu uppfærslu af hinum fræga söngleik West Side Story frá árinu 1957 (tekin upp þremur dögum eftir frumsýningu á Broadway), tónlist úr kvikmyndinni 9½ Weeks frá 1986 þar sem Kim Basinger og Mickey Rourke fóru á kostum og upptaka á söngleiknum Oklahoma frá árinu 1943. Ryk, sarg og rispur með kaffibollanum í nóvember í Gamla skóla.