Mynd af heimavist MA og VMA, fengin af facebook-síðu heimavistarinnar
Mynd af heimavist MA og VMA, fengin af facebook-síðu heimavistarinnar

Starfsfólk heimavistar MA og VMA leitar að áhugasömum íbúa sem er góður að taka upp, klippa og vinna myndbönd á síma. Þetta kemur fram í færslu á facebook-síðu heimavistarinnar.

„Við erum að leita að áhugasömum íbúa til að útbúa stutt kynningarmyndband fyrir heimavistina. Íbúinn vinnur myndbandið í samvinnu við starfsmann heimavistar -greiðsla í boði ! Áhugasamir sendi tölvupóst fyrir 10. febrúar á maria@heimavist.is eða koma við á skrifstofu Maríu á heimavistinni.“

Lundur sjálfseignastofnun rekur heimavistina sem aftur rekur nemendagarða fyrir framhaldsskólana tvo á Akureyri, í nýbyggingu Lundar og í eldri byggingu sem fyrrum hýsti heimavist MA.