- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Sl. föstudagskvöld frumsýndi Leikfélag Menntaskólans á Akureyri, LMA, söngleikinn Ljósku í gegn. Það er alltaf stór stund þegar LMA frumsýnir enda mikil vinna sem liggur að baki hverri sýningu. Undanfarin ár hefur leikfélagið sýnt söngleiki, býsna viðamiklar og fjölmennar sýningar þar sem er lifandi tónlist og dans.
Ljóska í gegn er byggt á söngleiknum Legally blonde - The Musical, leikgerð kvikmyndarinnar Legally blonde frá 2001. Hátt í 120 manns koma að sýningunni, leik- og danshópur, hljómsveit og fjölmörg teymi sem sjá um leikmynd og búninga, hár og förðun, markaðssetningu og styrkjamál og annað sem þarf til að setja upp stóra sýningu. Leikstjórnin er í höndum Benónýs Arnórssonar og Birtu Sólar Guðbrandsdóttur, en þau eru nýútskrifuð úr leiklistarskóla í Danmörku. Þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni þeirra. Benóný brautskráðist frá MA 2020 og tók einmitt sjálfur virkan þátt í LMA þegar hann var í skólanum.
Þrjár sýningar eru eftir, ein föstudaginn 20. mars og tvær sunnudaginn 22. mars. Hægt er að kaupa miða á mak.is og tix.is.