Jólatré á Langa gangi í Gamla skóla
Jólatré á Langa gangi í Gamla skóla

Nú er haustönninni alveg við það að ljúka. Síðustu reglulegu prófin eru í dag og forfallapróf eru 19. og 20. desember. Búið er að opna fyrir einkunnir í Innu.

Kennsla hefst aftur á vorönn 9. janúar. Þann dag verða líka endurtökupróf í náttúrulæsi og hlutaprófum í líffræði í 1. bekk (það þarf að skrá sig í þau á afgreidsla@ma.is). Annars halda nemendur áfram á vorönn þótt þeir hafi fall í einhverjum greinum. Hægt er að vinna upp fall á vorönn með því að ná meðaltalinu 5 í greininni eða taka endurtökupróf í vor.

Hikið ekki við að heyra í brautarstjórum eða aðstoðarskólameistara ef eitthvað er óljóst.

Við óskum ykkur nemendum gleðilegra jóla og þökkum ykkur kærlega fyrir samstarfið á önninni.