- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Nemendur á sviðslistabraut ljúka námi sínu með sýningu á lokaverkefnum í Samkomuhúsi okkar Akureyringa. Þetta er ávallt stór stund og mikil uppskeruhátíð fyrir nemendur og kennara. 15 verkefni voru sýnd á föstudagskvöldið, 12 á sviði og 3 utan sviðs. Það er dýrmætt að geta sett verkin upp í Samkomuhúsinu og skólinn þakkar MAk og LA kærlega fyrir samstarfið.
Kennarar í lokaverkefnisáfanganum eru Ingunn Elísabet Hreinsdóttir og Kolbrún Lilja Guðnadóttir.