Hópurinn fagnar í lokin ásamt kennaranum sínum, Ingunn Elísabetu.
Hópurinn fagnar í lokin ásamt kennaranum sínum, Ingunn Elísabetu.

Þann 12. maí fór fram einstök uppskeruhátíð í Samkomuhúsinu á Akureyri þar sem sjö ungir listamenn sýndu lokaverk sín. Þetta voru nemendur á þriðja ári á kjörnámsbraut í sviðslistum en á síðustu önninni í náminu vinna þau að lokaverkefni. Nemendur sömdu verkin sjálf, og flest fluttu þau einnig sjálf á sviðinu. Mikilvægt er að ungt fólk fái rými til þess að þróa eigin rödd og sýn. Þar sem þau fá tækifæri til þess að skapa, prófa og efast. Að mæta áskorunum en líka finna þrautseigjuna til að halda áfram. Það krefst mikils hugrekkis og trausts að leyfa öðrum að sjá inn í hug sinn og hjarta. Gestir fengu að upplifa mikinn metnað, hugmyndaauðgi og fjölbreytt verk sem spegluðu persónulega og listræna sýn hvers nemanda. 

Verk og höfundar: 

Er komið að Framtíðinni? Leikrit eftir Amöndu Eir Steinþórsdóttur

Á flótta frá dauðanum: Verk eftir Valdimar Kolka Eiríksson

Fljótið: Dansverk eftir Margrét Metanet Sigurðardóttur

Muna að njóta: Leikrit eða einræða eftir Ingu Rós Suska Hauksdóttur

Sætir strákar: Verk eftir Emiliu Kvalvik Hannesdóttur

Dauður: Stuttverk eftir Þórhall Arnórsson 

Vegbúinn þinn: Stuttverk eftir Ylfu Marín Þóreyjardóttur

 

Ingunn Elísabet Hreinsdóttir