Sveitir MA og Flensborgar rökræða um Eurovision í Flensborgarskóla. Mynd fengin af flensborg.is
Sveitir MA og Flensborgar rökræða um Eurovision í Flensborgarskóla. Mynd fengin af flensborg.is

Lið MA er komið áfram í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna – MORFÍs. Þetta varð ljóst eftir sigur á Flensborg í gærkvöld í 8-liða úrslitum keppninnar. Viðureignin fór fram í Hamarssal í Flensborgarskóla. Þegar upp var staðið munaði einungis tveimur stigum á liðunum MA í vil. Glæsilegur árangur hjá krökkunum okkar og verður gaman að fylgjast með hvaða lið mætast í undanúrslitum.