Jóhann Valur og Snædís Hanna
Fulltrúum framhaldsskólanemenda var boðið að taka þátt í Vísinda- og nýsköpunarþingi í Grósku 25. september þar sem þau hlýddu á erindi frá leiðandi einstaklingum úr íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi og kynntust fjölbreyttum verkefnum á sviði tækni og rannsókna. Eftir hádegi tóku þau þátt í vinnustofum hjá Fenris Creation þar sem hópar unnu að hugmyndum um nýsköpun til framtíðar. Fyrir hönd MA fóru þau Jóhann Valur og Snædís Hanna sem eru bæði í 3X
Snædís Hanna segir frá:
,,Á fimmtudaginn var okkur boðið á móttöku, þar sem Inga Sæland talaði aðeins við okkur og við fengum veitingar (þar á meðal voru bestu smákökur sem ég hef smakkað). Svo í föstudaginn hófst þingið með ávarpi frá forsætisráðherra og svo hlustuðum við á nokkra fyrirlestra frá fólki sem er að vinna með vísindi og nýsköpun og það var mjög áhugavert. Við fórum líka í eins konar hópavinnu, okkur var semsagt skipt í nokkra hópa og hver hópur fékk vandamál til þess að leysa. Niðurstöðurnar voru síðan kynntar fyrir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Loga Má Einarssyni. Yfirhöfuð fannst okkur þetta mjög skemmtilegt, við lærðum margt og kynntumst flottu fólki."