Björn Gunnar í ræðustól þegar MA mætti FG. Skjáskot frá beinni útsendingu.
Björn Gunnar í ræðustól þegar MA mætti FG. Skjáskot frá beinni útsendingu.

Menntaskólinn á Akureyri er kominn áfram í 8 liða úrslit í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, MORFÍs. Þetta varð ljóst eftir glæsilegan sigur á FG í 16 liða úrslitum í Kvosinni í kvöld.

Heildarstigafjöldi í kvöld var með hæsta móti, yfir 3000 talsins. Þegar uppi var staðið var munurinn á liðunum aðeins 181 stig. Ræðumaður kvöldsins var Jóhannes Óli Sveinsson í liði MA.

Glæsileg frammistaða hjá Birni Gunnari, Jóhannesi Óla, Laufeyju Lind og Malín Mörtu. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.