Eyrún Lilja og Katrín Día ásamt dómnefnd. Mynd af akureyri.is
Verðlaun í árlegri ritlistakeppni Ungskálda eru jafnan veitt á degi íslenskrar tungu.
Fyrstu verðlaun hlaut Eyrún Lilja Aradóttir fyrir verkið “Sturtan”, í öðru sæti var Katrín Día Gunnlaugsdóttir fyrir verkið “Miðbæjar-Darri”, en Katrín Día var einnig í þriðja sæti fyrir verkið “Þriðja augað”. Báðar eru þær MA-stúdentar, Eyrún Lilja Aradóttir 2020 og Katrín Día stúdent 2023. Við óskum þeim báðum innilega til hamingju.
Eyrún Lilja er enginn nýgræðingur í þessari keppni, hún var einnig í fyrsta sæti árið 2023 og árið 2025 varð hún í þriðja sæti.
Dómnefnd ársins skipuðu þau Sara Bjarnason, skipuleggjandi Kveldúlfs tónlistarhátíðar og verkefnastjóri Gjörningahátíðarinnar A!, Kött Grá Pjé, tónlistarmaður, textasmiður og rithöfundur, og Rannveig Karlsdóttir, þjóðfræðingur og kennari.
Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri og Atvinnuvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.