Magnús Orri Aðalsteinsson verður leiðbeinandi í nýjum valáfanga á vorönn
Magnús Orri Aðalsteinsson verður leiðbeinandi í nýjum valáfanga á vorönn

Málfundafélag MA (Málfó) undirbýr sig af krafti fyrir Gettu betur og MORFÍs. Við höfum áður fjallað um prufur sem fóru fram í skólanum í september sl fyrir spurningakeppni framhaldsskólanna. Af MORFÍs er það hins vegar að frétta að sérstakur valáfangi verður í boði fyrir áhugasama nemendur á vorönn í tengslum við Mælsku- og rökræðukeppnina. Reiknað er með að 18-20 nemendur geti valið áfangann. Leiðbeinandi verður Magnús Orri Aðalsteinsson. Þegar nær dregur keppnisvikum mun bætast í hóp þjálfara og/eða aðstoðarfólks. Magnús Orri er öllum hnútum kunnugur í MA. Hann útskrifaðist frá skólanum vorið 2020.