Framundan er löng helgi í MA, því ekki verður kennsla eða starfsemi í skólanum 26. og 27. október. Önnin er nú ríflega hálfnuð og því er þetta gott tækifæri til að hvílast og vera þannig vel búin undir seinni hluta annarinnar. Kennarar hafa skráð miðannarmat í INNU og nemendur og forráðafólk getur því séð stöðuna í námi og ástundun. Eins og skólameistari segir í fréttabréfi til forráðafólks er miðannarmat ,,hugsað sem leiðbeinandi mat og er til þess ætlað að vísa veginn fram á við. Verið er sérstaklega að koma málum þannig fyrir að lýsa stöðunni án þess að vera dæmandi og hver nemandi þarf að vega og meta hvort og þá hvernig gera þurfi betur. Til þess þurfa þeir leiðbeiningu og hvatningu. Hér í skólanum er yfirlýstur vilji til að sýna nemendum tiltrú svo þeir geti betur tekið ábyrgð á eigin námi og er miðannarmat líkt og áður segir góð leiðbeining."
Hér er hægt að skoða fréttabréfið