Mottumars í MA
Mottumars í MA

Marsmánuður er genginn í garð með nýju vínylplötuþema í MA. Nú komum við plötum febrúarmánaðar haganlega fyrir í kössum á ný og stillum upp nýjum plötubunka á kaffistofunni í Gamla skóla. Músíkantar með mottu er þemað í mars. Venju samkvæmt höfum við gramsað í plötusafni skólans og valið nokkrar vínylplötur sem hæfa þemanu. Á meðal flytjenda sem fá sviðið þennan mánuðinn má nefna Freddie Mercury, The Delta Rhythm Boys, Dizzy Gillespie og John Oates. Svo upp með motturnar og niður með nálina.