Svarthvíta myndin til vinstri af breskum hermönnum fyrir utan Gamla skóla barst Minjasafninu að gjöf…
Svarthvíta myndin til vinstri af breskum hermönnum fyrir utan Gamla skóla barst Minjasafninu að gjöf í desember síðastliðnum

Vefmiðillinn Akureyri.net greindi á dögunum frá tveimur breskum ferðamönnum sem komu til Akureyrar í desember síðastliðnum með gjöf til Minjasafnsins. Um var að ræða ljósmyndaalbúm með myndum sem faðir annars þeirra tók á Akureyri á meðan hann gegndi herskyldu á Íslandi í upphafi stríðs. Við birtum hér eina af myndunum frá akureyri.net / Minjasafninu en bendum áhugasömum á að hægt er að skoða fleiri myndir úr albúminu á vefmiðlinum. Á umræddri mynd má sjá hóp breskra hermanna spóka sig í sólinni við aðalinngang Gamla skóla. Breska setuliðið kom sér fyrir í skólahúsnæðinu sumarið 1940 og reisti tjöld á skólalóðinni. Myndir sem sýna hermenn og útbúnað þeirra í og við skólann eru sjaldséðar enda strangar reglur um myndatöku innan hersins á stríðstímum. „Nýjar“ myndir sem varpa ljósi á vist breskra hermanna í Gamla skóla á stríðsárunum eru því kærkomin viðbót við þær myndir sem fyrir eru.

Í þeim hópi er mynd sem margir kannast við, tekin norðan við Gamla skóla af skólabyggingunni og hertjaldi á skólalóðinni. Ef rýnt er í myndina má greina breskan hertrukk undir eldhúsgluggunum á Gamla skóla og breska hermenn að sniglast í kringum hann. Líkast til er trukkurinn af gerðinni Bedford MW en hann var algeng sjón á árum seinni heimsstyrjaldar, hvar sem breska herinn var að finna. Til viðbótar við þessar tvær myndir frá sögulegum augnablikum í skólanum, birtum við tvær úr nútímanum sem sýna svipuð sjónarhorn og hinar eldri. Til gamans settum við inn á myndirnar breska hermenn, á göngu í sólinni við aðalinnganginn að austan og í afslöppun í Bedford-trukki undir eldhúsgluggunum sem snúa í norður. Myndirnar má skoða á fésbókarsíðu MA.