Þekkir þú fólkið?
Þekkir þú fólkið?

Af og til fram á vorið mun ma.is bjóða lesendum síðunnar upp á létta og skemmtilega getraun. Við birtum myndir af ólíkum viðfangsefnum sem á einhvern hátt tengjast Menntaskólanum á Akureyri og gefum áhugasömum færi á að leysa gátuna.

Við ríðum á vaðið með andlitsmyndum af einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám við MA. Andlitin eru þó misþekkt eins og gengur. Erfiðara er að greina myndir sem átt hefur verið við svo að sjálfsögðu höfum við „fiktað við“ þær.

Í þessari fyrstu myndagetraun vorannar spyrjum við: Hvaða fyrrverandi nemendur eru á myndunum? Fyrir þá sem telja sig þekkja andlitin, bendum við á facebook-síðu skólans. Þar verður hægt að spreyta sig auk þess sem rétt svör verða birt að viku liðinni.

Við þökkum Sverri Páli Erlendssyni fyrir veitta aðstoð við gerð myndagetraunarinnar.