- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Stoðteymi Menntaskólans á Akureyri sótti um styrk til Sprotasjóðs fyrir skólaárið 2023 – 2024 fyrir verkefnið Geðrækt í MA. Afrakstur verkefnisins eru m.a. fjögur myndbönd sem nú hafa verið birt á heimasíðu skólans undir slóðinni Viskubrunnur – gagnleg myndbönd.
Myndböndin eru búin til af stoðteymi skólans, þeim Kristínu Elvu, Lenu Rut og Söndru Sif, en fyrrverandi nemendur voru fengnir í ýmis verkefni tengt útfærslunni. Birgir Orri Ásgrímsson sá um framleiðslu og handrit, Þröstur Ingvarsson sá um talsetningu, tónlist var í höndum Þorsteins Jakobs Klemenzsonar og Hrefna Logadóttir og Oliwia Moranska sáu um teikningu. Við erum afar stolt af vinnu þessara fyrrverandi nemenda okkar.
Myndböndin fjalla um prófkvíða, vellíðan, tímastjórnun og seiglu og munu nýtast nemendum skólans sem og öðrum. Hægt er að nálgast myndböndin hér.
Kristín Elva Viðarsdóttir, Lena Rut Birgisdóttir og Sandra Sif Ragnarsdóttir