Það skiptust á skin og skúrir í Berlínarferð nemenda dagana 22. - 26. október. Það blés allhressilega og á sunnudeginum var veðrið svo blautt og hryssingslegt að flóamörkuðum var aflýst en á dagskrá var að fara á Mauerpark markaðinn sem er sá frægasti í Berlín. Um hádegi var svo komið hið besta veður!
Í Berlínaráfanganum kynna nemendur sér sögu, menningu og staðhætti í Berlín og var dagskráin helguð heimsóknum á sögufræga staði sem oftar en ekki tengjast afleiðingum heimsstyrjalda, skiptingu Þýskalands og byggingu múrsins eins og East Side Gallery, minnismerkið um helförina, Brandenborgarhliðið, Check-Point Charlie og þinghúsið. En það var líka borðað vel og verslunarmiðstöðvar þræddar, allskyns söfn skoðuð og klifið upp í kirkjuturna, farið á handboltaleik hjá Füchse Berlin, í dýragarðinn fræga, í siglingu á ánni Spree og í túr með Berlínum svo nokkur dæmi séu tekin.
Nemendur héldu dagbók þessa daga og tóku þátt í skemmtilegri myndasamkeppni.
Almenningssamgöngur voru vel nýttar og þýskukunnáttan notuð t.d. til að panta mat.
Þrátt fyrir leiðinda magapest sem sumir voru svo óheppnir að fá, miklar framkvæmdir og lokaða staði þess vegna, og hressilegt haustveður var ferðin í heild sinni vel heppnuð og hópurinn mjög góður.
Fararstjórar voru Harpa og Rannveig þýskukennarar.
Harpa Sveinsdóttir