Kennarar á íslenskubrú ásamt Gígju Svavarsdóttur í Dósaverksmiðjunni
Kennarar á íslenskubrú ásamt Gígju Svavarsdóttur í Dósaverksmiðjunni

Kennarar á íslenskubrú sóttu námskeið á vegum Dósaverksmiðjunnar 17. og 18. mars. Dósaverksmiðjan er tungumálaskóli á framhaldsfræðslustigi, stofnaður og rekinn af Gígju Svavarsdóttur. Gígja er hugsjónakona eins og þær gerast flottastar og hefur byggt upp markvisst og árangursríkt tungumálanám og skapað nemendum sínum gott námsumhverfi. Kennarar nota námsefni sem er sérhannað fyrir skólann m.t.t. aðferða og hugmyndafræði sem Gígja og samstarfsfólk hennar hafa þróað í gegum árin. Þau nota til dæmis mikið af handahreyfingum og táknum, spila mjög mikið og elda og baka á öllum námskeiðum. Allt er þetta úthugsað og endurskoðað reglulega auk þess sem kennarar eru vel þjálfaðir áður en þeir taka við hópum.

Þetta fengu gestirnir að norðan allt að sjá og upplifa í kennslustofum skólans í tvo daga. Við fengum kynningu á námsefninu og aðferðunum en fengum svo að ganga á milli hópa og fylgjast með kennslunni. Þetta var magnað og margt sem íslenskubrúin í MA getur tileinkað sér þrátt fyrir ólíkan nemendahóp og öðruvísi námsuppbygingu.

Til að nýta borgarferðina sem best ákváðum við að líta líka við hjá kollegum okkar í Fjölbraut í Breiðholti (FB) og Kvennaskólanum. Kennararnir í FB eru búnir að vera að þróa frábært námsefni fyrir ÍSAN (íslenska sem annað tungumál) og fengu nýlega stóran styrk til að gefa þetta námsefni út á vegum MMS og gera það aðgengilegt ÍSAN kennurum í öðrum framhaldsskólum.

Kvennaskólinn er í ár að kenna sitt annað ár á sambærilegri braut og okkar íslenskubrú. Þar sem Kvennaskólinn og MA eiga margt sameiginlegt, t.d. að vera bekkjaskólar og með svipaðan nemendahóp almennt, var kærkomið að koma á samtali. Við komumst að því að áskoranir okkar eru mjög sambærilegar og við vorum sammála um að vinna saman og að læra hvert af öðru.

Allar komum við heim fullar af nýjum hugmyndum og erum spenntar að gera þær að raunveruleika í okkar góða skóla. 

 

Jóhanna B. Sveinbjörnsdóttir

verkefnastýra á íslenskubrú