Fyrsti formlegi starfsdagur kennara var 14. ágúst og hófu þeir daginn á námskeiði um Árangursrík teymi. Framundan eru töluverðar breytingar á starfsháttum nemenda og kennara og ýmis ný teymi kennara munu verða til. Námskeiðið var bæði gagnlegt og skemmtilegt og starfsfólk er orðið mjög spennt að hitta nemendur á mánudaginn.