Nemendur þreyta próf þessa dagana
Nemendur þreyta próf þessa dagana

Námsmatsdagar standa nú yfir í MA. Nemendur þreyta próf og sinna verkefnavinnu frá mánudegi til miðvikudags. Fjör færist í leikinn í næstu viku þegar nemendur standa fyrir árlegri góðgerðaviku. Að þessu sinni munu Píeta samtökin njóta góðs af framtaki nemenda. Góðgerðavikan stendur yfir dagana 8. – 12. mars.