Nemendur á Ljóðasetrinu
Nemendur á Ljóðasetrinu

Menningarlæsið fór í velheppnaða fræðslu- og menningarferð miðvikudaginn 22. apríl  þegar 1.T, 1.U, 1.V og 1.X ásamt kennurunum sínum steðjuðu til Siglufjarðar. Veðrið var með okkur í liði og skartaði Siglufjörður sínu fegursta með glaðasólskini og fannhvítum snjó í fjöllum.  

Nemendur stóðu sig með prýði, skoðuðu söfn, fóru í ratleik um bæinn og borðuðu nesti í safnaðarheimili kirkjunnar. Nemendur fóru á fjórar stöðvar, þær voru Róaldsbrakki og Bátahúsið, Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og Ljóðasetur Íslands. Ferðin var því nokkuð fjölbreytt, nemendur kynntust langspili og íslenskri fiðlu undir leiðsögn Gunnsteins Ólafssonar tónlistarmanns, hlýddu á ljóðalestur og gítarsöng Þórarins Hannessonar og fengu nasaþefinn af því hvernig lífið var á Siglufirði þegar síldin mokveiddist.

Aðalbjörg, Anna Sigga, Dóra og Kristinn, kennarar í menningarlæsi.