Hópurinn í Eskifirði
Hópurinn í Eskifirði

Vaskur hópur sextán nemenda úr 2.U fór í náttúruskoðun austur á land dagana 22. og 23. apríl. Tveir kennarar voru með í för, þau Þórhildur Björnsdóttir og Einar Sigtryggsson.

Það var vorlegt á Austurlandi og ekki allt klárt fyrir fólk á ferð um landið sitt. Sökum þess þurfti hópurinn að ganga tíu kílómetra leið, í stað fimm, til að skoða hið stórkostlega Stuðlagil. Þegar kom í gilið fengu nokkrir nemendur að kanna hitastigið á vatninu í Jökulsá á Brú. Notuðu þeir fæturna til þess og þótti vatnið ansi kalt. Eftir að hafa marserað heillengi í sólinni, fór þreyttur nemendahópurinn í bað í Vök. Hápunkturinn þar var að svamla í ísköldu Urriðavatninu.

Daginn eftir var haldið yfir Fagradal til Eskifjarðar. Þar var gengið upp að litlum og skemmtilegum fossi áður en aðalævintýri ferðarinnar hófst. Gengu nemendur spenntir upp að munna Helgustaðanámunnar þar sem átti að fara inn í iður jarðar. Þegar að var komið virtist innganga í námuna ómöguleg þar sem mikill snjór var yfir námumunnanum. Með því að brjóta sér leið í gegn um snjóinn komust allir sem vildu inn í námuna. Námugöngin liggja í ranghölum 60 m inn í fjallið og er ævintýri líkast að klöngrast þar um í svartamyrkri.

Eftir áningu í sólinni á Reyðarfirði brunaði 2.U heim á leið með skemmtilegar minningar í farteskinu.