Mynd fengin af heimasíðu TónAk.
Mynd fengin af heimasíðu TónAk.

Sunnudaginn 24. september hélt Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands sína árlegu tónleika í Hörpu þar sem flutt var stórvirkið Symphonie fantastique eftir Hector Berlioz undir stjórn Nathanaël Iselin. Ungsveitina skipa um 100 ungmenni sem valin voru til þátttöku eftir prufuspil og hafa verið á stífum æfingar síðustu vikur.

5 núverandi nemendur Tónlistarskólans á Akureyri tóku þátt nú í ár: Júlíana Valborg Þórhallsdóttir og Katrín Róbertsdóttir fiðluleikarar, Helga Björg Kjartansdóttir víóluleikari, Mahaut Matharel hörpuleikari og Matiss Leo Meckl pákuleikari. Katrín og Mahaut eru í VMA og Helga Björg og Júlíana í MA. Matiss lauk stúdentsprófi af tónlistarkjörsviði MA og TA síðasta vor og undirbýr nú framhaldspróf á slagverk vorið 2024. Þátttaka í þessu verkefni þýðir að nemendur þurfa að vera fyrir sunnan í tvær vikur þannig að þau leggja mikið á sig til að taka þátt.

Sjá frétt Tónlistarskólans á Akureyri