Nemendur kjósa til stjórnar skólafélagsins
Nemendur kjósa til stjórnar skólafélagsins

Síðustu daga hefur félagslíf nemenda að miklu leyti einkennst af kosningum til stjórnar skólafélagsins og annarra embætta. Vikan hófst á sérstökum áróðursdegi og í kjölfarið gengu nemendur til kosninga. Í dag rennur svo stóra stundin upp þegar úrslit kosninganna verða kunngjörð. Stjórnarskipti fara væntanlega fram þriðjudaginn 3. maí.