Ný stjórn skólafélagsins Hugins. Myndin er fengin af facebook-síðu þess.
Ný stjórn skólafélagsins Hugins. Myndin er fengin af facebook-síðu þess.

Í síðustu viku voru kosningar til stjórnar skólafélagsins Hugins og miðstjórnar. Kosningarnar voru rafrænar annað árið í ár. Stjórnarskiptin sjálf fóru svo fram í Kvosinni þann 1. maí. Þá kvaddi gamla stjórnin og sú nýja tók við stjórnartaumunum. Nýja stjórn skipa þau Arndís Erla Örvarsdóttir, Aron Snær Eggertsson, Jóhannes Óli Sveinsson, Kolbrún Perla Þórhallsdóttir, Magnea Vignisdóttir, Sóley Brattberg Gunnarsdóttir, Sóley Úa Pálsdóttir og forseti skólafélagsins er Elísa Þóreyjardóttir. Skólinn óskar þeim til hamingju með kjörið og hlakkar til samstarfsins.