Nýtt kynningarmyndband MA hefur litið dagsins ljós!

 Í myndbandinu eru nokkrir nemendur teknir tali og spurðir út í það hvers vegna þeir völdu skólann. MA-ingarnir Tjörvi Jónsson (stúdent 2020) og Kári Hólmgeirsson (stúdent 2015) sáu um upptökur ásamt Ólafi Tryggvasyni (3I). Tjörvi sá svo um alla eftirvinnslu.

 Við erum stolt af skólanum okkar og þið megið endilega koma skilaboðunum áfram með því að deila myndbandinu af Facebook síðu skólans og leyfa öðrum að sjá.

Bestu kveðjur úr MA!