Alls eru 85 áfangar kenndir í skólanum á þessari önn og lýkur 29 þeirra með lokaprófi. Próftaflan hefur verið birt í INNU með fyrirvara um breytingar. Ákvörðun verður svo tekin þegar ný reglugerð um sóttvarnir verður gefin út, hvort prófin verða rafræn eða á staðnum eða jafnvel blanda þessara tveggja leiða. Það fer m.a. eftir því hvort og hversu mikið staðnám verður í boði fram að 9. desember þegar próf eiga að hefjast.