Íkorninn Ratatoskur
Íkorninn Ratatoskur

Hefðbundið skólahald vék fyrir fróðleik og fjöri þegar hinn árlegi Ratatoskur, uppbrotsdagar í MA, fór fram dagana 12. og 13. mars. Fjölbreytt námskeið einkenna dagana, fyrirlestrar og upplifanir sem nemendur og starfsfólk skipuleggja í sameiningu.

Uppbrotsdagarnir draga nafn sitt af íkornanum Ratatoski úr norrænni goðafræði sem hleypur upp og niður stofn Asks Yggdrasils. Á sama hátt einkennist skólinn af miklu lífi þessa daga þar sem nemendur flakka á milli ólíkra viðburða í stað þess að sitja í hefðbundnum kennslu- og vinnustundum.

Skólafélagið Huginn á heiðurinn af skipulagningu dagskrárinnar. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu var boðið upp á fjölmörg námskeið þar sem nemendur fengu tækifæri til að kynnast nýjum áhugamálum eða dýpka þekkingu sína á spennandi viðfangsefnum. Nú var starfsfólk sérstaklega hvatt til að taka meiri þátt og bjóða upp á námskeið og viðbrögðin leyndu sér ekki. Líklega hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikið í boði á Ratatoski, hér má sjá dæmi um námskeið sem nemendur sóttu:

  • Skáknámskeið með SviMA
  • Chernobyl í máli og myndum
  • Bezelbakstur
  • Kósý smásjárvinna
  • Bókaklúbbur
  • Pönnukökur og spil
  • Jóga nidra
  • Stoðtími í efnafræði/stærðfræði
  • Hádegisganga
  • Vonarbrú – hjálparstarf að heiman
  • Finnska 101
  • Stafsetningarkeppni
  • Fjallaskíðaferð á Kaldbak
  • Rauðakrosskynning
  • Kleinugerð frá grunni
  • Kappsmál
  • Tónfræðikennsla TóMA
  • Svefn 101

Myndir frá Ratatoski má finna á Instagram og Facebook MA.