Guðný, Linda, Brynjar og Jóhann sjá um ritver og stærðfræðiver á bókasafninu
Guðný, Linda, Brynjar og Jóhann sjá um ritver og stærðfræðiver á bókasafninu

Hvað er Ritver?

Ritver MA býður nemendum upp á stuðning við hvers konar fræðileg skrif þar sem nemendur fá persónulega ráðgjöf með verkefni í smíðum. Þeir geta fengið stuðning og góð ráð um ýmislegt sem snýr að skrifum eins og hugmyndavinnu, skipulagi, frágangi og heimildavinnu.

Nemendur geta bókað ráðgjöf á Facebook síðu Ritversins en þeir geta einnig komið við í Ritverinu án þess að eiga bókaðan tíma og fengið persónulega ráðgjöf. Nemendur geta einnig komið nokkur saman í Ritverið og hópar geta líka fengið hjálp við hópverkefni.

 Ritversteymið skipa Brynjar Karl, Guðný Björg og Linda Sólveig.

 Nýjung: Eðlis- og stærðfræðiver:

Jóhann stærðfræði- og eðlisfræðikennari verður einnig með einstaklingsaðstoð í sínum greinum.

  • Vantar þig að skerpa á einhverju atriði í stærðfræði eða eðlisfræði? Þá er bara mæta á safnið á auglýstum tímum eða bóka.

 Bókaðu tíma á Facebókarsíðu Ritversins eða mættu á safnið.