Lið MA í fyrstu viðureigninni í MORFÍs 2021-22
Lið MA í fyrstu viðureigninni í MORFÍs 2021-22

Lið MA þreytti fyrstu viðureign skólaársins í MORFÍs um helgina. Þau öttu kappi við lið Menntaskólans við Sund. Umræðuefnið var ,,samningar skulu standa", MS mælti með því en MA á móti. Það er skemmst frá því að segja að lið MA vann og átti einnig ræðumann kvöldsins. Lið MA skipuðu að þessu sinni Malín Marta Ægisdóttir, Krista Sól Guðjónsdóttir, Sjöfn Hulda Jónsdóttir og Þröstur Ingvarsson.