Sigurjón Pétursson og Sigrún María sigurvegarar í smásagnakeppni. Á myndina vantar Helgu Sóleyju sem…
Sigurjón Pétursson og Sigrún María sigurvegarar í smásagnakeppni. Á myndina vantar Helgu Sóleyju sem einnig vann til verðlauna.

Þrír nemendur fengu í gær verðlaun frá enskudeildinni fyrir smásögur sem þau skrifuðu á ensku. Þetta eru þau Helga Sóley Tulinius, Sigrún María Pétursdóttir og Sigurjón Pétursson. Þessar smásögur verða svo framlag MA í smásagnakeppni félags enskukennara á Íslandi. Við óskum Helgu, Sigrúnu og Sigurjóni innilega til hamingju með þessar flottu smásögur.