ÍMA (Íþróttafélag MA) stóð fyrir vel heppnuðu skákmóti í vikunni sem leið og söfnuðust margir saman í Kvosinni í löngu og matarhléi alla vikuna til að fylgjast með skákmönnum. Úrslitin fóru svo fram í löngu frímínútunum 27. febrúar og öttu þar kappi saman tveir fyrstu bekkingar, þeir Baldur Thoroddsen 1T sem varð í 2. sæti og Markús Orri Óskarsson 1U sem varð í 1. sæti. Orri Páll Pálsson varð í 3. sæti. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju.