Grunnskólanemendur kynna sér nám og félagslíf í MA
Grunnskólanemendur kynna sér nám og félagslíf í MA

Nemendur í 9. og 10. bekk frá fjölmörgum grunnskólum utan Akureyrar komu í skólakynningu í MA í gær. Þeir nýttu Akureyrarferðina vel, heimsóttu báða framhaldsskólana og skoðuðu jafnframt heimavistina. Á haustönninni komu grunnskólarnir á Akureyri í sambærilega heimsókn. Náms- og starfsráðgjafar MA munu síðan heimsækja grunnskóla á Akureyri og í nágrenninu  til að kynna betur námsframboðið í MA.

Forinnritun hefst 9. mars og stendur til 13. apríl. Lokainnritun stendur svo yfir frá 6. maí til 10. júní. Kynningarfundur fyrir foreldra 10. bekkinga og verðandi hraðlínunemendur verður 25. mars.