Hópurinn sem tók þátt í samræðufundinum. Mynd fengin af forseti.is
Karl Frímannsson skólameistari tók þátt í samræðufundi á Bessastöðum á dögunum. Á heimasíðu forseta Íslands segir að forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hafi boðið fjölbreyttum hópi fólks til óformlegs fundar á Bessastöðum þar sem rætt var um hvernig ýta mætti undir samtal þjóðarinnar um stöðu okkar og framtíðarsýn. Í hópnum voru fulltrúar almannaheillasamtaka, fulltrúar framhalds- og háskólanema og fólk með fjölþætta reynslu, meðal annars af skipulagningu stórra funda.
Í upphafi fundarins á Bessastöðum ræddi forseti stuttlega um þær áherslur sem hún hefur lagt í embætti og áhuga sinn á að efna til víðtækara samtals meðal landsmanna. Þátttakendur höfðu margt til málanna að leggja í því efni en ákveðið var að halda umræðum áfram og móta betur þær hugmyndir sem reifaðar voru á fundinum.
Sjá á forseti.is