Stjórn skólafélagsins Hugins 2026-2027.
Menntaskólinn á Akureyri verður settur 19. ágúst 2026, klukkan 09:30.
Gert er ráð fyrir að allir nemendur mæti og forráðafólk nýnema er sérstaklega hvatt til að koma með börnum sínum.
Að lokinni skólasetningu fer 1. og 2. bekkur í stofur til umsjónarkennara en forráðafólk nýnema situr kynningarfund.
kl. 13: Tölvuaðstoð* fyrir 1EFGH og nýnema í efri bekkjum í Kvosinni.
kl. 14: Tölvuaðstoð* fyrir 1TUVX og nýnema í efri bekkjum í Kvosinni.
* Nýnemar og forráðafólk fær tölvupóst fyrir helgi með nákvæmum leiðbeiningum um virkjun á skólanetfangi, uppsetningu á tvöfaldri auðkenningu og tengingu við Office 365. Mikilvægt er að hafa lokið þessum skrefum fyrir skólasetningardag en ef það tekst ekki að fullu er hægt að fá aðstoð á þessum tíma.
19. ágúst: Kennsla hefst samkvæmt hraðtöflu. Hraðtaflan verður birt á ma.is og send í tölvupósti.
Þegar nær dregur skólasetningu birtist stundatafla nemenda í INNU. Til að komast inn í Innu þarf rafræn skilríki, forráðafólk getur líka skráð sig inn.
Hér eru ýmsar upplýsingar fyrir nýnema og forráðafólk: Spurt og svarað
Starfsfólk MA hlakkar til að hitta nemendur 19. ágúst.