Guðríður og Vala bóna stofu G22 - sem er eins og fínasti danssalur
Guðríður og Vala bóna stofu G22 - sem er eins og fínasti danssalur

Ræstitæknar skólans - sem ganga undir nafninu Rauði herinn meðal nemenda (og er kærleiksríkur her í þeirra augum) - nýta nemendalausar vikur til hálfgerðra jólahreingerninga í húsum skólum. Hér er bónleyst og bónað og gluggar þvegnir og allt þrifið hátt og lágt. Fleiri myndir eru á Facebook síðu skólans.