- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Um helgina fór fram úrslitakeppni í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Reykjavík. Þrír MA-ingar höfðu þátttökurétt; Elvar Björn Ólafsson var upptekinn við æfingar á Ljóska í gegn sem verður frumsýnd eftir hálfan mánuð og Tobías Þórarinn Matharel var við keppni á Meistaramóti í frjálsum innanhúss og sigraði þar í langstökki karla.
Fulltrúi MA í stærðfræðikeppninni var Snædís Hanna Jensdóttir í 2X. Henni gekk aldeilis prýðilega og varð í 15. sæti og öðlaðist þar með þátttökurétt í Norrænu stærðfræðikeppninni sem haldin verður í lok mánaðarins í Svíþjóð. Snædís Hanna tekur líka þátt í æfingabúðum fyrir Norrænu keppnina og í Evrópuleikum stúlkna í stærðfræði (e. European Girls' Mathematical Olympiad) í apríl.
Við óskum Snædísi Hönnu innilega til hamingju með frábæran árangur og velfarnaðar í keppnunum framundan.