Tobías og Snædís Hanna
Tveir nemendur MA komust áfram í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema, sem haldin var 29. september.
Tobías Þórarinn Matharel í 2X var í 22. sæti og Snædís Hanna Jensdóttir í 3X í 8. sæti, bæði á efra stigi. Bæði komust þau áfram í fyrra líka. Þau sem komast áfram eftir forkeppnina öðlast rétt til að keppa í úrslitakeppninni sem haldin verður í mars á næsta ári. Þeim sem verða í efstu sætum úrslitakeppninnar býðst þátttaka í Norrænu stærðfræðikeppninni og þau gætu einnig verið valin til að keppa í Eystrasaltskeppninni og Ólympíuleikunum í stærðfræði.
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema hefur verið haldin árlega síðan 1984 og markmið hennar er að auka áhuga framhaldsskólanema á stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á stærðfræðilegum grunni. Að þessu sinni tóku 13 nemandur úr MA þátt í forkeppninni.
Við óskum þeim Tobíasi og Snædísi Hönnu innilega til hamingju með árangurinn.