Tónlist af vínylplötum fær að óma í Gamla skóla í febrúar
Tónlist af vínylplötum fær að óma í Gamla skóla í febrúar

Um miðja 20. öldina bjuggu í Gamla skóla skólameistarahjónin Þórarinn Björnsson og Margrét Eiríksdóttir ásamt tveimur börnum. Margrét hafði getið sér góðs orðs sem píanóleikari þegar hjónin fluttu þangað vorið 1948. Hún hafði stundað tónlistarnám hérlendis sem erlendis á millistríðsárunum og á árum seinni heimsstyrjaldar. Þá var hún ráðin skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri árið 1946 og gegndi því starfi í fjögur ár. Fjölskyldan bjó í Gamla skóla til ársins 1960 og því ekki ólíklegt að píanóhljómar hafi af og til glatt hjörtu nemenda skólans á sjötta áratugnum.

Upp er runninn nýr mánuður með nýju vínylplötuþema. Febrúar er mánuður kvenna í tónlist á kaffistofunni í Gamla skóla þar sem Margrét sló nóturnar forðum daga. Við drögum fram nokkrar vel valdar plötur úr safni skólans þar sem konur eru í aðalhlutverki og leggjum þjóðlegar plötur janúarmánaðar til hliðar. Björk okkar, Doris og Donna, Mahalia og Madonna og allar hinar sönggyðjurnar á góu í Gamla.

Meðfylgjandi mynd er samsett. Fyrir miðju er ljósmynd Jóns Kaldal af Margréti Eiríksdóttur þar sem hún situr við píanó í Reykjavík á árunum 1939-1941. Myndin er varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands en fengin af sarpur.is