Í dag voru formleg stjórnarskipti í skólafélaginu Huginn. Vilté Petkuté hringdi þá á Sal í síðasta skipti og hún og félagar hennar í fráfarandi stjórn kvöddu og þökkuðu fyrir sig. Skólameistari ræddi um nýafstaðnar kosningar og minnti nemendur á að gæta ávallt orða sinna. Hann þakkaði fráfarandi stjórn fyrir sérlega gott samstarf. Hann sagði að þeim hefði tekist að mæta vel í skólann og sinna námi sínu afar vel þrátt fyrir miklar annir, þau hefðu verið skipulögð, dugleg og jákvæð. Hann veitti þeim síðan silfurugluna, heiðursmerki skólans. Að því loknu hringdi nýr formaður, Gunnar Óli, bjöllunni í fyrsta sinn. 

Á myndinni er nýkjörin stjórn. 

Frá vinstri: 

Gunnar Óli Gunnarsson 2T

Íris Alma Kristjánsdóttir 2F

Ásdís Olsen Eðvaldsdóttir 2U

Heiðdís Pála Áskelsdóttir 2IL

Sigríður Birna Ólafsdóttir 2IL

Jóhann Valur Björnsson 2X

Eydís Rósa Jónsdóttir 2F

Edda Júlíana Jóhannsdóttir 2U