Iðnaðarmenn við rannsókn á vettvangi stóra lekamálsins
Iðnaðarmenn við rannsókn á vettvangi stóra lekamálsins

„Rannsókn“ er hafin á leka sem vart hefur orðið í húsnæði skólans. Starfsmenn ÁK smíði vinna þessa stundina hörðum höndum að því að komast að rótum lekans. Ekkert mikilvægt hefur lekið út, aðeins örlítið vatn og engar uppsagnir verða í kjölfar vatnslekans.

Að öllu gamni slepptu er ljóst að vatnslekinn hefur lítil sem engin áhrif á skólastarf þó ummerki á vettvangi bendi til annars. Vegfarendur eru þó beðnir um að sýna aðgát á meðan á framkvæmdum stendur við aðalinngang skólans.