- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Í síðasta þætti af Kiljunni á RÚV var sögð saga manns að nafni Guðmundur Arnfinnsson. Mundi, eins og hann var gjarnan kallaður, stundaði nám við MA um miðjan sjötta áratuginn en hann útskrifaðist vorið 1960. Hann lést í árslok 2023.
Mundi var bók- og listhneigður og sinnti kveðskap og málaralist af miklum áhuga. Ekki fór mikið fyrir listamanninum Munda á opinberum vettvangi, hann stundaði listsköpun sína í hljóði. Hann batt inn bækur og safnaði þeim í stórum stíl. Bókasafn hans er nú varðveitt í nýuppgerðri vélaskemmu á Snæfellsnesi.
Í áðurnefndum Kiljuþætti rifjaði Kristján Guðjónsson fjölmiðlamaður upp þegar hann tók viðtal við Guðmund í strætó fyrir útvarpsþáttinn Lestina á Rás 1. Þá þekktust þeir ekki. Skömmu eftir viðtalið fékk Kristján fregnir af andláti Munda. Í kjölfarið fór af stað atburðarás sem nú hefur getið af sér útvarpsþátt um Guðmund. Þátturinn fer í loftið á Rás 1 á páskadag. Hægt er að taka forskot á sæluna því þátturinn er nú aðgengilegur í spilara RÚV.
Í tilefni af umfjölluninni í Kiljunni og til minningar um Guðmund Arnfinsson, skulum við rýna í nokkur eintök af skólablaðinu Muninn frá 1955 til 1960. Mundi sat í stjórn blaðsins árið 1956, fékk ljóð sín birt í nokkrum blöðum og sigraði í verðlaunasamkeppni sem blaðið efndi til haustið 1958. Þátttakendur áttu að botna fyrri part vísukorns sem hófst á þessum orðum:
Augum renna ungir menn
út á kvennavistir.
Mundi botnaði með eftirfarandi hætti:
Bogann spennir amor enn
ásta- kennir -listir.
Haustið 1959 ferðuðust nemendur sjötta bekkjar um Suður-Þingeyjarsýslu, líklega á tveimur langferðarbifreiðum. Eins og góðri rútuferð sæmir kasta ferðalangarnir nokkrum stökum sín á milli. Mundi ríður á vaðið:
Í hinum bílnum hyggjum vér
heitar fýsnir brenna.
Þar er allt að ylja sér
undir pilsum kvenna.
Iðunn svarar:
Þeir, sem aldrei kvenmannskoss
á kalda vanga hljóta,
yrkja gramir um það hnoss,
sem aðrir fá að njóta.
í Námaskarði sækir Mundi í sig veðrið:
Hitt er satt: hjá ykkur er
ekki neitt að hljóta.
Hver, sem vill má helga sér
hafurtaskið ljóta.
Nanna Bjarnadóttir og Iðunn svara um hæl:
Blés í kaunin kappalið,
klesstan leirinn saman barði.
Illa þefjar afkvæmið,
sem undir kom í Námaskarði.
Hér að neðan má nálgast nokkur ljóð eftir Guðmund Arnfinnsson sem birtust í Munin á námsárum hans í MA 1955-1960.