Höfundur gerir truflun frá ljósmyndatöku í próftíð vorið 1970 að umtalsefni
Höfundur gerir truflun frá ljósmyndatöku í próftíð vorið 1970 að umtalsefni
 
Virðingarleysi?

Þar sem nú fyrst gefst tækifæri til að koma mér hugfólgnu máli á framfæri í fjölmiðli skólans, þá vil ég nota það, þó seint sé.

Í vor sl. voru 4. bekkingar stærðfræðideildar, þar á meðal ég, samankomnir á Sal einn fagran morgunn til að taka eðlisfræðipróf. Eins og menn gera sér ljóst var okkur í num að koma sem mestu af okkar kunnáttu á blaðið, á þeim tíma, sem okkur var ætlaður- þó ekki væri nema til að ná prófi.

Þar sem próftimi styttist iðulega um 1 5 – 20 mín. framan af vegna ýmissa ástæðna, þannig að ekki var hafizt handa fyrr en hálftíma seinna, en gert var ráð fyrir, þá hefði mátt ætla að afgangstíminn yrði án truflana. (-Oftast varð að skila á hinum upphaflega ákveðna tíma-)

En í þetta sinn var sem leikæfing, eða eitthvað þessháttar, færi fram á Sal, því að kl. rúmlega 8.30 var ljósmyndara úr bænum hleypt inn með allt sitt glamrandi hafurtask og smellti hann þar af þrífætinum í u.þ.b. 30 mín. Virtist hann ekkert tillit þurfa að taka til þess t.d., að sumum finnst kvalræði að hafa myndavél nálægt sér- auk þess, sem þarna stóð yfir próf og gat varðað suma miklu að hafa sinn tíma í friði!

- Við hefðum t.d. öll getað tekið fyrir hann gervipróf og setið fyrir á öðrum tíma. Því þurfti endilega að trufla próf fyrir jafnauðvirðilegan hlut? Þætti mér vænt um að þetta verði tekið til athugunar á vori komanda, svo að slíkt virðingarleysi við friðhelgi nemenda í prófum endurtaki sig ekki. - Eða hvað finnst ykkur?

Katarína 5. bekk


Heimild: Muninn 43. árgangur, 1. tbl.