Nemendur í MA höfðu skoðanir á átökum stórveldanna eftir fund Reagans og Garbatsjov í Höfða í október 1986
Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Samfélagsumræðan á kaffistofum landsmanna í október og nóvember 1986 snérist að miklu leyti um vígbúnaðarkapphlaup, stjörnustríð, frið og leiðtoga stórveldanna. Muninn, skólablað MA, fór ekki varhluta af umræðunni frekar en aðrir miðlar á þessum tíma. Tveir nemendur í þriðja bekk, þeir Ófeigur Örn Ófeigsson í 3A og Hlynur Hallsson í 3U, skiptust á skoðunum um stöðu heimsmála á síðum blaðsins haustið 1986 og fram á vorið 1987. Upphafið að skoðanaskiptum þeirra félaga var grein sem Ófeigur skrifaði undir yfirskriftinni „Vígbúnaðarkapphlaup“ og birtist í blaðinu þremur vikum eftir fund Reagans og Gorbatsjov. Þeir Ófeigur og Hlynur sátu saman í ritnefnd Munins veturinn 1986-87. Við rifjum upp greinaskrif frá hausti 1986 og vori 1987 í skólablaðinu um kalt stríð í kjölfar Höfðafundarins og byrjum á Vígbúnaðarkapphlaupi Ófeigs.
Vígbúnaðarkapphlaup
Nú er vitað að verulegur árangur náðist á fundi leiðtoga stórveldanna. Leiðtogarnir voru á flestum sviðum sammála, t.d. um eyðingu kjarnorkuvopna á stuttum tíma. Helsta ágreiningsmálið var síðan geimvarnaáætlun Bandaríkjanna, "SDI".
En tryggir eyðing kjarnorkuvopna heimsfriðinn? Það er mjög ólíklegt. Eftir að öllum kjarnorkuvopnum hefur verið eytt hefur hið svokallaða ógnarjafnvægi tapast. Gefum okkur lítið dæmi:
Segjum sem svo að Rússar skjóti kjarnorkusprengju að Bandaríkjunum þá vita þeir jafnt sem við að þeir fá í staðinn á sig hundruð kjarnaodda. Það er því sú vissa að nóg er til af vopnum til að eyða heiminum sem heldur Rússum í skefjum og sama gildir um Bandaríkjamenn.
En eftir að ógnarjafnvægið hefur tapast, engin kjarnorkuvopn eftir, geta hvorir um sig hafið vígbúnaðarkapphlaupið að nýju, talið sig hafa yfirburði og allir vita hvað getur gerst.
En ógnarjafnvægið heldur ekki bara risaveldunum í skefjum, heldur einnig öðrum þjóðum. ímyndið ykkur Bandaríkin kjarnorkuvopnalaus og maður eins og Gaddafí kæmist yfir kjarnorkusprengju. Þá gæti farið illa. Kjarnorkuvopnalaus heimur gæti því gert að verkum að einn (brjálaður) einræðisherra gæti náð meiri völdum í heiminum, í krafti einnar kjarnorkusprengju, en nokkurn óraði fyrir. Þá verður að hafa hugfast að kunnáttan til að smíða kjarnorkusprengju er útbreidd um heim allan.
SDI (Strategic Defenee Initiative) eða geimvarnaráætlunin er mikilvægur hlekkur í varnarkerfi Bandaríkjanna. Hún miðar að því að eyða kjarnorkuvopnum úti í geimnum áður en þau eyða skotmörkum sínum á jörðu niðri.
Margir hafa bent á að Bandaríkjamenn ætli að koma upp þessu kerfi til þess að geta óhræddir hótað Sovétmönnum kjarnorkustyrjöld, eða jafnvel gert árás á þá. Hvílík vitleysa, Sovétmenn beindu einfaldlega flugskeytum sínum á önnur skotmörk og kjarnorkuvetur og gífurleg mengun yrðu óhjákvæmileg. Hins vegar gætu Bandaríkin orðið óhult undir slíku kerfi þó Gaddafí kæmist yfir eina sprengju eða svo.
Þetta reyndu Rússar að banna Bandaríkjamönnum að gera, að verja land sitt.
Hins vegar bauð Reagan Gorbachev að Bandaríkjamenn skyldu gera Rússum kleift að koma upp slíku kerfi eftir að Bandaríkjamenn hefðu þróað það. Sumir eru vantúaðir á að Bandaríkjamenn myndu gera það, en því ekki. Með því að bæði stórveldin hefðu yfir slíkum varnarvopnum að ráða yrði heimurinn fyrst öruggur gegn kjarnorkuvopnum.
Á blaðamannafundinum í Háskólabíói sagði Gorbachev að geimvarnaáætlunin myndi leiða þjóðirnar út í nýtt vopnakapphlaup, leysivopnakapphlaup. Einnig sagði hann að leysivopn væru miklu hættulegri en kjarnorkuvopn. KJAFTÆÐI. Mannskæðari og hættulegri vopn en kjarnorkuvopn er ekki hægt að finna, og þá ekki bara vegna sprengimáttarins heldur einnig vegna mengunar og annarra áhrifa þegar til lengri tíma er litið, en eins og staðan er í dag er ekki víst að það sé okkur til framdráttar að losna við þau öll nema varnarvopnin komi til.
Ófeigur Ó.
Heimild: Muninn 59. árgangur, 1. tbl.