- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Maí og farið að styttast í annan endann hjá okkur. Síðasti plötupakki ársins er klár. Við ljúkum þessu með bros á vör og sól í sinni og þeytum skífum sem minna á sumar og sól fram að skólaslitum. Ekki veitir af í því tíðarfari sem nú ríkir. En látum ekki rysjótt tíðarfar aftra okkur frá því að hafa gaman og minnumst þess að bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Þetta kemur allt saman. Lóan er jú komin og senn kemur spóinn. Líklega er hann þó kominn því helstu farfuglar sem hér verpa eru farnir að koma fyrr til landsins en áður, þrátt fyrir duttlungafulla veðurguði. Setjum sumarplötur á fóninn og snúum vörn í sókn. Sumar plötur eru einfaldlega betur til þess fallnar en aðrar.